Skip to content
Ljósvitund
  • Miðlun
  • Jarðstraumar
  • Ljósmiðlun
  • Tónheilun
  • Hafa samband
  • Um mig

Miðlun

Miðlun

Kamara og Ramses III

Miðlun 4. janúar 2026

Miðlun 4. Janúar 2026 – miðlað af Svala Rún

Ég er Kamara,

Takk fyrir, þennan hóp að taka við kærleikanum og ljósinu. Takk fyrir að opna og meðtaka ljósið inn á jörðina.

Mig langar að tala um þessa nýju tíma.

Ég vil byrja að segja að Síríus gegnir mikilvægu hlutverki á þessum nýju tímum sem jörðin er að stíga inn í, eða flæða inn í, vil ég segja. Síríus er tákn um og inniheldur orku inn í hjarta, inn í sálarvakninguna og inn í umbreytingatímana núna.

Með Síríus orkunni vil ég segja, beinist geislinn af kærleika, af kristorkunni inn í mannshjörtun. Afstöður Síríusar eru mikilvægar á næstu mánuðum og árum í þessu ferli í sálarvakningunni.

En það sem ég vil segja núna er að maðurinn er að opnast, eða meira vil ég segja, hefur val um að opnast inn í sálarvakningu og sálarvitundina sína.

Já, margir eru komnir vel á veg þar sem taugakerfið og orkukerfið er tilbúið að taka við sálarvakingunni og krist tengingunni. Aðrir eru ekki svo tilbúnir.

Ég vil tala um þennan tíma vegna þess að margir koma til með að upplifa miklar þjáningar á þessum tíma. Þar sem orkukerfið og taugakerfið bregst við þannig að maðurinn eða einstaklingurinn nær ekki að tengjast inn í sálarvakninguna sína.

Þar sem kerfið verður, eins og ég vil segja, frosið þegar geislinn kemur inn og er að opna inn á sálarvakinguna.

Margir upplifa ótta, veikindi og hömlur og komast einhvern vegin ekki áfram í lífinu. Og þarna vil ég segja þeir þekkja ekki þessa orku, þeir þekkja ekki þessa tengingu við sálartenginguna sína. Þeir þekkja ekki sjálfa sig eða upprunann sinn.

Margir geta hjálpað til í gegnum þetta ferli í sálarvakningunni. En þetta tímabil á eftir að valda mörgum vanlíðan, ótta og efa um sjálfan sig.

Eftir því sem tíminn líður og maðurinn hefur val að flytja sig áfram inn í sálarvakinguna sína, þá verða fleiri sem komast inn í sína vakningu. En það verða samt margir sem komast ekki.

Ég vil segja að Síríus mun aðstoða og mun styrkja og mun efla ferlið fyrir manninn að opna inn sig inn á sína sál og sálartengingu.

Já, mannkynið mun skiptast í hópa á meðan þetta ferli gengur yfir. Það mun taka tíma og mun valda togstreitu og spennu á meðan þetta ferli gengur inn.

En fegurðin í sálartengingunni og sálarvakningunni er guðdómleg. Þetta verða tímar umbreytinga, tímar uppfærslu.

Og að lokum vil ég minna á að kristur hefur stigið inn á jörðina til að aðstoða mannkynið. Aðstoða hvern og einn í sínu ferðalagi að sálarvakningu með kristi.

Kamara þakkar fyrir sig.

Ramses er hér

Hann vill byrja á því að sýna stórt hlið sem er hlaðið steinum. Þetta er eins og hlið sem maður myndi sjá í Egyptalandi, þar sem eru stórar styttur báðum megin.

Hann sýnir hvernig ljós, eða sólin, skín í gegnum hliðið. En hann vill undirstrika að þetta hlið er mjög, mjög stórt. Gríðarleg stærð og gríðarlega öflugt ljós sem fer í gegnum hliðið, segir hann.

Og það eru fylkingar af fólki sem gengur inn í hliðið í átt að ljósinu. Fyrir ofan hliðið er eins og kóróna. Hann vill tala um að þetta sé eins og vígsla, að ganga í gegnum hliðið, því að fólk tekur breytingum inn í vitund sinni að stíga í gegnum þetta hlið.

En hann vill enn frekar segja hversu mikilvægt þetta hlið er og hversu ljósið er stórt og sterkt og mikilvægt fyrir mannkynið, fyrir jörðina, fyrir þróunina á jörðinni, í átt að nýrri vitund og hærri vitund.

Hann sýnir að þetta gerist í raun og veru á stuttum tíma. Þó að okkur finnist það vera langur tími, þá verður þetta ekki mjög langur tími sem mannkynið mun taka þessum breytingum og ganga í gegnum þetta hlið.

Enn og aftur vill hann bara ítreka hversu hliðið er stórt, hversu ljósið er sterkt og öflugt og hversu mikill fjöldi af mannkyninu mun ganga í gegnum þetta hlið, í átt að ljósinu.

Hann segir fólk er að fagna. Það verða hátíðarhöld. Fólk er að fagna nýjum anda, segir hann. Nýjum tímum.

Hann talar um eins og skrúðgöngur, eins og hátíðarhöld, þó að þetta séu ekki hátíðarhöld í efninu þá verða þetta hátíðarhöld í hjartanum.

Hann sýnir hvernig maðurinn situr við vakninguna. Það er eins og verði, nú vil ég tala um, skraut yfir brjóstkassann og í kringum herðarnar. Eins og kóróna á höfuðið á manninum.

Hann sýnir líka í þessum hátíðarhöldum, sem eru í raun og veru innri hátíðarhöld, þar sem fólk tengist og stígur inn í sína vitund. Eins og það sé mikið fagurt, mikið fagurt eins og það væri í fallegum kjól, eða með mikið af skartgripum, eða glitrar.

Sýnir fólk geisla. Hann er í raun ekki að tala um að það hafi klætt sig og sett á sig skartgripi, heldur er útgeislunin í sálinni og hjartanu orðin mikil þegar þau stíga inn í sína vitund.

Hann sýnir hversu fallegt þetta er þegar fólk fer í gegnum hliðið sitt og uppljómunin verður mikil. Þetta verða miklir fagnaðartímar, mikil hátíðarhöld, mikil fegurð og mikill kærleikur, segir hann.

Og með þessu fylgir hamingja og mikil gleði. Og nú talar hann um eins og fólk sé að syngja með hljóðfæri og fólk að dansa í gleði í hátíðarhöldunum inn í sér.

Hann hlær og segir það verður veisla. Það verður veisla hjá mörgum þegar þeir komast í gegnum hliðið. Því þetta er eins og uppskerutími, segir hann, þar sem uppskeran er mikil og falleg.

Mikill ávinningur. Margir innri vinningar. Friður, kærleikur, hamingja, gleði, sannleikurinn. Hvert mannsbarn ber sitt fallega ljós.

Já, segir hann.

Hann sýnir hvernig hátíðarhöldin verða fyrst lítil og minni, en svo stækka þau og verða meiri eftir því sem fleiri stíga í gegnum hliðið.

Hann vill segja að þetta kemur allt saman. Auðvitað mun þetta taka á fyrir marga og verða erfitt að komast í gegnum hliðið. Þá vill hann orða það þannig að hvert og eitt mannsbarn þarf að finna hliðið sitt inn í sér.

En í rauninni er þetta eitt stórt hlið, segir hann.

Ramses þakkar fyrir sig

Yesuha

Ramses III

Theme by Colorlib Powered by WordPress